Alls 2846 manns í framboði

mbl.is/Ómar

Alls eru 2846 einstaklingar á 185 framboðslistum í þeim 58 sveitarfélögum þar sem kosið verður með bundinni hlutfallskosningu í sveitarstjórnarkosningum í lok maí. Í 18 sveitarfélögum komu engir framboðslistar fram og eru því allir íbúar í kjöri um sæti í þeim sveitarstjórnum. Í fjórum sveitarfélögum kom aðeins einn listi fram og því er sjálfkjörið.

Í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu segir að fjöldi frambjóðenda jafngildi því að ríflega 1,2% kjörgengra einstaklinga í landinu séu í framboði. 

Flestir framboðslistar eru í Reykjavíkurborg, eða átta talsins, sjö í Kópavogsbæ og sex á Akureyri.

Kosningavefur Dómsmálaráðuneytisins
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert