Sigur Besta flokksins vekur athygli

Fagnað á kosningahátíð Besta flokksins í gærkvöldi.
Fagnað á kosningahátíð Besta flokksins í gærkvöldi. mbl.is/Eggert

Sigur Besta flokksins í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík hefur vakið athygli út fyrir landsteinana. Breska ríkisútvarpið BBC segir frá flokknum á vef sínum í dag og birtir nokkur helstu kosningaloforð flokksins, svo sem sjálfbært gegnsæi, ókeypis handklæði í sundlaugunum og ísbjörn í Húsdýragarðinn. 

Fréttamaður BBC horfði á kosningamyndskeið Besta flokksins þar sem frambjóðendur sungu við lag Tinu Turner: Simply the Best. Vísar BBC einnig til þess að Besti flokkurinn vilji einnig fá skemmtigarð í Vatnsmýrina og fíkniefnalaust alþingi árið 2020. Jón Gnarr, leiðtogi flokksins, sagði raunar í sjónvarpsumræðum á föstudag að hann hefði fallið frá kröfunni um skemmtigarðinn. 

Frétt BBC

Kosningamyndskeið Besta flokksins

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert