Vefur um Stjórnlagaþing í loftið

Íslenski fáninn
Íslenski fáninn

Stjórnlagaþing á að koma saman í febrúar 2011 til að endurskoða stjórnarskrá lýðveldisins Íslands. Þingið á að standa í tvo til fjóra mánuði og verður skipað minnst 25 og mest 31 þjóðkjörnum fulltrúa. Þingfulltrúar verða kosnir persónukosningu þann 27.nóvember og er landið eitt kjördæmi við kosninguna.

Stjórnlagaþinginu er ætlað að undirbúa frumvarp að endurbættri stjórnarskrá og hafa til hliðsjónar við þá vinnu niðurstöður Þjóðfundar 2010.

Framboðsfrestur til stjórnlagaþings rennur út klukkan 12.00 á hádegi þann 18. október n.k. og skal skila framboðum til landskjörstjórnar, að því er segir á nýjum vef þar sem upplýsingar um Stjórnlagaþingið er að finna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert