Eignarhald auðlinda mikilvægasta málið

Frá þjóðfundi, sem haldinn var nýlega til að undirbúa stjórnlagaþing. stækka

Frá þjóðfundi, sem haldinn var nýlega til að undirbúa stjórnlagaþing. mbl.is/Eggert

Um helmingur þeirra, sem tóku þátt í könnun Miðlunar á því hvaða mál væru mikilvægust í störfum væntanlegs stjórnlagaþings, nefndi umhverfismál, þar á meðal um eignarhald og nýtingu náttúruauðlinda.

Í lögum um stjórnlagaþing segir að það skuli taka til umfjöllunar ýmsa þætti. Þegar þessir þættir voru bornir undir þátttakendur í könnuninni töldu 50% að umhverfismál og auðlindir væri mikilvægasta málið. 49% töldu skipan löggjafarvalds og framkvæmdarvalds og valdmörk þeirra mikilvægast og 41% taldi mikilvægast að fjalla um sjálfstæði dómstóla og eftirlit þeirra með öðrum handhöfum ríkisvalds.

Um var að ræða netkönnun, sem var gerð frá 28. október til 16. nóvember.  Upphaflegt úrtak var 1600 einstaklinga og bárust svör frá 863 einstaklingum og var svarhlutfall því 53,9%.

PDF-skrá Könnun Miðlunar
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is