Sveinbjörg þakkaði fjölmiðlum

Sveinbjörgu B. Sveinbjörnsdóttur, oddvita Framsóknar og flugvallarvina var vel fagnað …
Sveinbjörgu B. Sveinbjörnsdóttur, oddvita Framsóknar og flugvallarvina var vel fagnað er hún mætti á kosningavöku flokksins í nótt. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti Framsóknar og flugvallarvina í Reykjavík, þakkaði fjölmiðlum fyrir að vekja athygli á henni og flokknum í aðdraganda kosninganna. Hún hafi verið á forsíðu blaðanna á hverjum einasta degi hvort sem var undir góðum eða slæmum fyrirsögnum.

Þetta sagði Sveinbjörg Birna í samtali við fréttamann Ríkisútvarpsins í nótt, en þá var staðan þannig að Framsóknarflokkurinn var með tvo menn í borgarstjórn Reykjavíkur. Hún sagði stöðuna óvænta miðað við skoðanakannanir en ekki miðað við ætlun flokksins fyrir fimm vikum. „Það er búið að vinna nótt sem nýtan dag.“

Sveinbjörg sagði ákveðin ummæli sem hún lét falla vissulega hafa vakið athygli en ekki síður hafi það verið fjölmiðlar sem fjölluðu um hana í kjölfarið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert