„Fallegt að fólk treysti manni“

Andri Snær Magnason rithöfundur.
Andri Snær Magnason rithöfundur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Það er auðvitað bara fallegt að vita til þess að fólk treysti manni í þetta,“ segir Andri Snær Magnason rithöfundur í samtali við mbl.is en stofnuð hefur verið Facebook-síða þar sem hann er hvattur til þess að gefa kost á sér í embætti forseta Íslands. Tæplega 1.100 manns hafa skráð sig á síðuna sem sett var á laggirnar í síðasta mánuði.

„Maður sem ég ber mikla virðingu fyrir, og sem ég gæti alveg séð fyrir mér sem forseta, sagði við mig að þegar svona lagað væri orðað við mann þá væri það gert í einlægni og þá bæri manni skylda til þess að íhuga það alvarlega,“ segir Andri. 

Bessastaðir.
Bessastaðir. mbl.is/Eggert
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert