Fjöldi stuðningsmanna Davíðs Oddssonar er samankominn á kosningaskrifstofu hans á Grensásvegi.
Viðbrögð stuðningsfólks hans þegar fyrstu tölur birtust einkenndust af undrun og nokkrir virtust verða fyrir vonbrigðum með fylgi síns manns, en almennt er þó létt yfir fólki.
Þeir stuðningsmenn sem mbl.is ræddi við voru almennt á því máli að lítið væri að marka fyrstu tölur og að kosningin virtist ekki ætla að vera í samræmi við skoðanakannanir. Eyþór Arnalds var þeirra á meðal og sagði hann tölurnar óvæntar, fremur en vonbrigði.