Festa séreignarleiðina í sessi

Guðlaugur Þór Þórðarson, varaþingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, er ánægður með að festa …
Guðlaugur Þór Þórðarson, varaþingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, er ánægður með að festa eigi séreignarsparnarleiðina í sessi. mbl.is/Þórður Arnar

Festa á séreignarsparnaðarleiðina í sessi, þetta var meðal þess sem rætt var á fundi þingflokksformanna á Alþingi nú áðan og er meðal þeirra hugmynda sem kynntar verða í Hörpu nú á eftir. Áður höfðu frumvörpin verið kynnt á fundi stjórnarflokkanna.

„Það var verið að kynna mjög spennandi mál,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, varaformaður þingflokks Sjálfstæðismanna. „Ég held þetta verði góður dagur og segi fyrir sjálfan mig að mér finnst mjög ánægjulegt að það sé verið að fest a séreignarleiðina í sessi.“

Guðlaugur Þór kvaðst þó ekki vilja fara út í nein smáatriði. „Ég er búinn að berjast fyrir þessu frá 1995 þannig að ég er mjög sáttur við það. Þetta verða góðar fréttir fyrir marga, sérstaklega fyrir unga fólkið sem er að kaupa sér íbúð í fyrsta skipti.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert