Alþingi ljúki störfum í dag

Einar K. Guðfinnsson forseti Alþingis
Einar K. Guðfinnsson forseti Alþingis mbl.is/Ómar Óskarsson

„Ég geri ráð fyrir að þetta muni klárast um hádegisbilið,“ segir Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi, spurður hvort þingið komi til með að klára störf sín í dag.

Þingfundur er boðaður kl. 10.30 í dag en fyrir liggur að klára ýmis mál áður en þingið slítur fundi endanlega fyrir kosningarnar.

Til afgreiðslu verða meðal annars frumvarp um stofnun millidómstigs, aðgerðir stjórnvalda gegn skattsvikum, stofnun embættis umboðsmanns flóttamanna, útlendingalög (frestun réttaráhrifa), almannatryggingar (einföldun bótakerfis, breyttur lífeyristökualdur o.fl.).

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert