Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst í dag

mbl.is/Eggert

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar mun hefjast hjá sýslumönnum og utanríkisþjónustunni hefjast í dageða svo fljótt sem kostur er, í samræmi við XII. kafla laga um kosningar til Alþingis. Þetta kemur fram í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu.

Eins og kunnugt er, þá hefur kjördagur fyrir kosningar til Alþingis verið ákveðinn 28. október.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fer fram á eftirfarandi stöðum:

Innanlands: Hjá sýslumönnum um allt land, á aðalskrifstofum eða í útibúum þeirra. Þá getur sýslumaður einnig ákveðið að atkvæðagreiðsla á aðsetri embættis fari fram á sérstökum stað utan aðalskrifstofu, svo og að atkvæðagreiðsla fari fram á öðrum stað í umdæmi hans. Upplýsingar um kjörstaði og afgreiðslutíma vegna atkvæðagreiðslu utan kjörfundar er hægt að finna á vefsíðu sýslumanna. Sýslumenn auglýsa hver á sínum stað hvar og hvenær atkvæðagreiðslan fer fram.

Erlendis: Á skrifstofu sendiráðs, í sendiræðisskrifstofu eða í skrifstofu kjörræðismanns samkvæmt nánari ákvörðun utanríkisráðuneytisins. Utanríkisráðuneytið getur þó ákveðið að utankjörfundaratkvæðagreiðsla fari fram á öðrum stöðum erlendis. Utanríkisráðuneytið auglýsir hvar og hvenær atkvæðagreiðsla getur farið fram erlendis.

Vefsíða utanríkisráðuneytisins

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert