Þórhildur: Hylmdi yfir með föður forsætisráðherra

Logi Einarsson, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir og Bjarni Benediktsson voru meðal …
Logi Einarsson, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir og Bjarni Benediktsson voru meðal gesta í Silfrinu á RÚV í morgun. mbl.is/Eggert

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, oddviti Pírata, segir að flokkurinn muni að sjálfsögðu sækjast eftir því að mynda ríkisstjórn í kjölfar alþingiskosninga. Píratar hlutu 9,2% atkvæða, sex þingmenn en flokkurinn tapaði fjórum þingmönnum frá kosningunum fyrir ári.

„Að sjálfsögðu sækjumst við eftir því. Við munum gera allt sem við getum til að koma á stjórnarlegum stöðugleika á landinu en til þess er ætlast af okkur,“ segir Þórhildur Sunna í samtali við mbl.is.

Við erum að ná inn í þriðja sinn sem er ánægjulegt og sýnir að við erum komin til að vera,“ segir Þórhildur Sunna en hún neitar því ekki að Píratar séu örlítið svekktir með að fá færri þingmenn kjörna en í fyrra:

„Að sjálfsögðu en á móti kemur að stefnumál okkar hafa komist inn í stefnur flestra annarra flokka. Nú eru allir farnir að tala um upplýsingafræði, gagnsæi, nýja stjórnarskrá og annað slíkt. Við komum inn í stjórnmál til að koma vissum skilaboðum til skila og ná ákveðnum árangri og það er að bæta stjórnsýsluna og koma henni inn í 21. öldina. Einnig að bæta upplýsinga- og tjáningarfrelsi á Íslandi. Við höfum enn verk að vinna og eigum fullt erindi áfram.

Erfitt að vinna með þeim sem fara illa með vald

Hún segir að erfitt sé að segja til um það á þessari stundu hvort Píratar geti ekki hugsað sér að mynda ríkisstjórn með ákveðnum flokkun. „Maður hefur það á tilfinningunni að Píratar myndu ekki eiga samleið með þeim flokkum sem hafa gert sína eigin hagsmuni að aðalmálum sinna stjórnmála. Það er erfitt fyrir okkur að vinna með flokkum sem, að okkar mati, fara ekki vel með vald. Við ættum þar af leiðandi erfiðara að fara í stjórn með þeim en öðrum.

Aðspurð telur Þórhildur Sunna að ástæður þess að kosið var núna, akkúrat ári eftir síðustu alþingiskosningar, hafi týnst í umræðunni. 

„Við kusum út af því að konur höfðu hátt. Við kusum út af því að Sjálfstæðisflokkurinn hylmdi yfir með föður forsætisráðherra sem skrifaði upp á uppreist æru fyrir barnaníðing. Það fékk ekki mikla umræðu í kosningabaráttunni og hvernig Sjálfstæðisflokkurinn tók á því máli er meðal annars ástæðan fyrir því að þeir hafa stimplað sig út úr því að teljast stjórntækir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert