Karlalistinn hélt kynningarfund

Karlalistinn var kynntur í dag.
Karlalistinn var kynntur í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Framboð Karlalistans til komandi borgarstjórnarkosninga var tilkynnt á Horninu í Hafnarstræti fyrr í dag.

mbl.is/Kristinn Magnússon

Helstu stefnumál listans voru kynnt. Meðal annars vill hann bætta og aukna barnavernd og að barnavernd Reykjavíkurborgar beiti heimildum sínum til íhlutunar þegar umgengni er tálmað með óréttmætum hætti.

mbl.is/Kristinn Magnússon

Einnig vill hann að Innheimtustofnun sveitarfélaga taki aukið tillit til félagslegra og heilsufarslegra þátta við innheimtu meðlaga.

Auk þess vill Karlalistinn þrýsta á löggjafann um að færa innheimtur meðlaga til Tryggingastofnunar þar sem meðlögin eru greidd út, eins og tíðkast í flestum samanburðarlöndum.

mbl.is/Kristinn Magnússon

Tvær konur á topp tíu 

Gunnar Kristinn Þórðarson stjórnsýslufræðingur er oddviti Karlalistans en tvær konur eru á lista yfir tíu efstu sætin, þær Dagbjört Edda Bárðardóttir og María Ás Birgisdóttir. Þriðja konan, Guðbjörg Marta Guðjónsdóttir, er í 22. sæti á listanum. 

Tíu efstu sæti Karlalistans:

  1. Gunnar Kristinn Þórðarson stjórnsýslufræðingur
  2. Gunnar Waage kennari
  3. Stefán Páll Páluson grafískur hönnuður
  4. Kristinn Skagfjörð Sæmundsson öryrki
  5. Hjalti Þorvaldsson Grafískur hönnuður   
  6. Dagbjört Edda Bárðardóttir ráðgjafi
  7. Sigfús Atli Unnarsson vélstjóri
  8. Loftur Baldvinsson stuðningsfulltrúi
  9. Þorfinnur Pétur Eggertsson vélfræðingur
  10. María Ás Birgisdóttir öryrki

Karlalistinn var á meðal þeirra 16 framboða sem skiluðu inn framboðslistum í Reykjavík. 

Borgarstjórnarkosningarnar verða haldnar 24. maí. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert