Ný vítamín framleidd með byltingarkenndri tækni

Ásdís Birta Auðunsdóttir, heilsu- og næringarfulltrúi hjá Artasan.
Ásdís Birta Auðunsdóttir, heilsu- og næringarfulltrúi hjá Artasan. mbl.is/Kristinn Magnússon

Cure Support hefur í tvo áratugi verið að þróa hin öflugustu bætiefni sem völ er á með Liposomal-tækni. Sú tækni tryggir hámarks nýtingu og upptöku næringarefna í líkamanum.

Cure Support er hollenskt fyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu á hágæða bætiefnum. Fyrirtækið er með sína eigin framleiðslu þar sem þeirra helsta áhersla liggur að frásogi bætiefna í líkama okkar. Þessi háþróaða tækni hefur verið að þróast í tvo áratugi og ekki að ástæðulausu þar sem vörur með tiltekinni tækni hafa slegið í gegn víða um heim. Aðalmarkmið Cure Support er að útbúa áhrifarík bætiefni sem veita þér hámarks virkni og góða líðan með fyrrnefndri Liposomal-tækni.

Vítamínin frá Cure Support eru vegan, innihalda engan sykur né …
Vítamínin frá Cure Support eru vegan, innihalda engan sykur né gerviefni og eru glútenlaus. Hraðari upptaka – Betri virkni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Tryggir hámarks nýtingu og upptöku næringarefna

Ásdís Birta Auðunsdóttir er með gráðu í næringarfræði og hefur kynnt sér fyrirtækið Cure Support og Liposomal-tæknina afar vel.

„Liposomal eru örlitlar kúlulaga loftbólur sem samanstanda af einu eða fleiri fosfólípíðum sem eru náttúruleg lípíð eða fita,“ útskýrir Ásdís Birta.

Bætiefni sem unnin eru með Liposomal-tækni henta afar vel fyrir þá sem eiga erfitt með upptöku næringarefna af einhverjum ástæðum, sem og öllum sem vilja skilvirka og góða upptöku næringarefna. 

Ásdís Birta er með BS gráðu í næringarfræði og hefur …
Ásdís Birta er með BS gráðu í næringarfræði og hefur mikinn áhuga á heilbrigðum lífsstíl en hún mælir hiklaust með vörulínunni frá Cure Support fyrir alla sem vilja tryggja hámarks upptöku og nýtingu næringarefnanna í líkamanum. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Bætiefni sem unnin eru með Liposomal-tækni eru umlukin tvöfaldri fituhimnu sem vernda og auka upptöku í meltingarvegi. Tæknin gerir það að verkum að bætiefnið virkar hraðar og betur ásamt því að líkaminn á auðveldara með að nýta næringarefnin. Tæknin hefur að auki þá eiginleika að verja næringarefnin fyrir svo sem ensímum, magasýrum og öðru sem fyrir finnst í meltingarkerfinu sem gerir það að verkum að næringarefnin skila sér þannig betur til frumna og vefja og kemur þannig í veg fyrir að stærri skammtar af vítamínum valdi óþægindum eða truflunum í meltingarvegi,“ segir hún.

„Með slíkum hætti verður upptakan mun skilvirkari og tryggir tæknin hámarks nýtingu og upptöku næringarefnanna í líkamanum,“ bætir Ásdís við og bendir á að Liposomal vörulínan fæst í Hagkaup, Fjarðakaup, Nettó, Lyfjaveri og Urðarapóteki.

Hylki unnin með einkaleyfisvarinni Aktin-tækni

Cure Support hefur framleitt Magnesíum með Liposomal-tækni sem er einstaklega áhrifarík leið til þess að fá inn daglegan skammt af þessu mikilvæga steinefni. Varan er í fljótandi formi sem gerir það að verkum að steinefnið skilar sér beint út í blóðrás og tryggir þannig hámarks upptöku.

Cure Support hefur að auki þróað sérlega áhugaverða aðferð sem kallast Aktin-tækni þar sem Liposomal-tæknin er notuð til þess að útbúa hylki. Cure Support er með einkaleyfi á tiltekinni Aktin-aðferð.

Magnesíum stuðlar að viðhaldi eðlilegra beina, tanna og vöðvastarfsemi.
Magnesíum stuðlar að viðhaldi eðlilegra beina, tanna og vöðvastarfsemi. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Rannsóknir hafa sýnt fram á að hylki sem framleidd eru með Aktin-tækni þar sem notast er við Liposomal, frásogast betur samanborið við önnur sambærileg bætiefni í formi hylkja. Cure Support hefur verið að þróa tiltekna aðferð til fjölda ára en þeirra meginmarkmið með slíkri aðferð er hágæða frásog og upptaka næringarefna í líkamanum,“ segir Ásdís.

Frábært vöruúrval Cure Support

Cure Support býður upp á frábært úrval af öflugum vörum sem framleiddar eru með Aktin-tækni, undir heitinu Vitrunova. Vörulínan inniheldur fyrst og fremst Magnesíum sem unnin er með Liposomal-tækni og fimm vörur til viðbótar þar sem unnið er með Aktin-tæknina.

„Vitrunova-vörulínan inniheldur D3-vítamín sem stuðlar meðal annars að viðhaldi eðlilegra beina og tanna. K2 + D3 vítamín blandan er einstaklega áhrifarík en samvirkni K2 og D-vítamíns er gríðarlega mikilvæg fyrir mannslíkamann en saman tryggja þessi næringarefni að kalkið frásogist úr blóðinu og skili sér til beinanna þar sem það bætir beinþéttni,“ segir Ásdís.

Að auki býður Vitrunova upp á B12 vítamín sem stuðlar meðal annars að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins.

Hér má sjá hina heilögu þrennu. B12 stuðlar meðal annars …
Hér má sjá hina heilögu þrennu. B12 stuðlar meðal annars að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins, D3 annast viðhald á eðlilegum beinum og tönnum og D3-K2 er sögð einstaklega áhrifarík blanda sem tryggir að næringarefni og kalk frásogist úr blóðinu og og skili sér til beina. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Það er afar mikilvægt fyrir myndun rauðu blóðkornanna sem sjá um að flytja súrefni um líkama okkar, sem og C vítamín hylki sem gegnir fjölda mikilvægra hlutverka í líkama okkar líkt og að auka frásog járns,“ segir hún.

Síðast en ekki síst býður vörulínan upp á Q10 hylki í vörulínu Cure Support en Q10 hefur lengi verið þekkt fyrir heilsueflandi eiginleika sína á mannslíkamann en meðal annars tekur það þátt í því að vinna orku úr fæðuefnum í grunnefnaskiptum fruma ásamt því að vera öflugt andoxunarefni.

„Vörulína Cure Support inniheldur eitthvað fyrir alla.“ 

Q10 tekur þátt í að vinna orku úr fæðuefnum í …
Q10 tekur þátt í að vinna orku úr fæðuefnum í grunnefnaskiptum frumnanna. Q10 er einnig öflugt andoxunarefni. C-vítamín gegnir fjölda mikilvægra hlutverka í líkama okkar og eykur frásog járns. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert