Myndagallerí

Magnaðar dýramyndir

Birtingardagur: Fimmtudaginn, 3. apríl 2014

Ástfangnar mörgæsir. duglegir otrar, öfundsjúkir hundar, tignarleg tígrisdýr og skjaldbökur í sólbaði er meðal þess sem dýramyndasyrpa vikunnar á mbl.is hefur uppá að bjóða.

Ástfangnar mörgæsir skammt frá herstöð Síle á Suðurskautslandinu.

Mynd 1 af 32 – Ljósm.: AFP
Hvað er þarna á seyði? Jú mikið rétt, kvenforskur ber karlfrosk á bakinu í átt að tjörn í Beeskow í Þýskalandi. Froskarnir eru fyrr á ferðinni en áður þar sem vorað hefur snemma í Evrópu.

Mynd 2 af 32 – Ljósm.: AFP
Kanína í körfu við bóndabæ í austurhluta Þýskalands.

Mynd 3 af 32 – Ljósm.: PATRICK PLEUL
Dýrahirðir fylgist með þegar ljónið Max klórar í rúðu til að vekja athygli á sér í dýragarðinum í Munchen.

Mynd 4 af 32 – Ljósm.: AFP
Mörgæs við herstöð í Camera á Suðurskautslandinu.

Mynd 5 af 32 – Ljósm.: AFP
Úps! Ísbjarnarhúnn að leik í dýragarðinum í Munchen.

Mynd 6 af 32 – Ljósm.: MARC MUELLER
Röltandi svín í dýragarði í Munchen í Þýskalandi.

Mynd 7 af 32 – Ljósm.: AFP
Skjaldbaka sem er nýskriðin úr eggi flýtir sér í átt að sjónum á eyjunni Sukamade í Indónesíu.

Mynd 8 af 32 – Ljósm.: AFP
Lemúr með afkvæmi sín í dýragarði í Þýskalandi.

Mynd 9 af 32 – Ljósm.: AFP
Hundur lítur inn um glugga á kaffihúsi í Torínó en þangað mega kettir koma með eigendum sínum. Hundar eru hins vegar bannaðir.

Mynd 10 af 32 – Ljósm.: AFP
Harfan er súmötrutígur sem fæddist árið 2008. Gestir dýragarðsins í Berlín fengu loks að sjá hann í síðustu viku. Harfan og kvendýrið Mayang eru bara í heimsókn í Þýskalandi en þau búa í dýragarði í Indónesíu. Vonast er til þess að parið eignist afkvæmi.

Mynd 11 af 32 – Ljósm.: AFP
Drómedarar, arabískir úlfaldar, láta vel hvor að öðrum í dýragarðinum í Berlín.

Mynd 12 af 32 – Ljósm.: AFP
Síberíutígur lætur fara vel um sig í dýragarðinum í Berlín í Þýskalandi.

Mynd 13 af 32 – Ljósm.: AFP
Kanína í almenningsgarði í Þýskalandi.
Kanína í almenningsgarði í Þýskalandi.
Mynd 14 af 32 – Ljósm.: AFP
Íkorni í almenningsgarði í Þýskalandi.
Íkorni í almenningsgarði í Þýskalandi.
Mynd 15 af 32 – Ljósm.: AFP
Sex mánaða hvítur tígrisdýraungi leikur við móður sína í dýragarði á Indlandi. Kvendýrið eignaðist þrjá hvolpa sem öllum heilsast vel.

Mynd 16 af 32 – Ljósm.: AFP
Púðluhundar á hundasýningu í Berlín.
Púðluhundar á hundasýningu í Berlín.
Mynd 17 af 32 – Ljósm.: AFP
Selurinn Steffi kyssir kinn þjálfara síns í fjölleikahúsi í Hanover.

Mynd 18 af 32 – Ljósm.: AFP
Fíll á sýningu fjölleikahúss í Hanover. Um 110 dýr eru í fjölleikahúsinu og 100 starfsmenn.

Mynd 19 af 32 – Ljósm.: AFP
Svanir synda í rólegheitum um tjörn í Hamborg.

Mynd 20 af 32 – Ljósm.: AFP
Pandabjörninn Mei Xiang, sem er móðir Bao Bao sem fæddist fyrir stuttu, gæðir sér á bambus í dýragarði í Washington.

Mynd 21 af 32 – Ljósm.: AFP
Starfsmaður dýraverndunarsamtaka í Washington í Bandaríkjunum heldur á einum þeirra hunda sem bjargað var í borginni Sotsjí í Rússlandi í kjölfar vetrarólympíuleikanna. Tíu rússneskir flækingshundar fá nýtt heimili í Bandaríkjunum.

Mynd 22 af 32 – Ljósm.: AFP
Rússneskur flækingshundur kominn í skjól í dýraathvarfi í Washington í Bandaríkjunum. Hann er einn tíu hunda sem bjargað var í borginni Sotsjí í Rússlandi í kjölfar vetrarólympíuleikanna.

Mynd 23 af 32 – Ljósm.: AFP
Þjálfari með höfrungi í þjálfununarbúðum í borginni Sevastopol í Úkraínu. Höfrungarnir eru þjálfaðir til að finna sprengjur neðansjávar.

Mynd 24 af 32 – Ljósm.: AFP
Veiðimenn í Bangladess nota otra til að reka fiska í ánum í net sín. Þeir launa otrunum með lúxusfæði.

Mynd 25 af 32 – Ljósm.: AFP
Þriggja daga gamall fílsungi reynir að fóta sig í lífinu í dýragarði í Hanover í Þýskalandi.

Mynd 26 af 32 – Ljósm.: AFP
Ung górilla fær sér lauf að éta í dýragarði í Washington í Bandaríkjunum.

Mynd 27 af 32 – Ljósm.: AFP
Kavi er stórt og stæðilegt tígrisdýr. Hér leikur hann sér við kvendýrið Damai í dýragarði í Washington.

Mynd 28 af 32 – Ljósm.: AFP
Skjaldbökur í sólbaði í dýragarði í Washington.

Mynd 29 af 32 – Ljósm.: AFP
Kavi er heitt. Hann býr í dýragarði í Washington og vorið er komið.

Mynd 30 af 32 – Ljósm.: AFP
Kópur hvílir sig ofan á móður sinni á lítilli eyju undan ströndum Úrúgvæ.

Mynd 31 af 32 – Ljósm.: AFP
Rússneskur flækingshundur kominn í skjól í dýraathvarfi í Washington í Bandaríkjunum. Hann er einn tíu hunda sem bjargað var í borginni Sotsjí í Rússlandi í kjölfar vetrarólympíuleikanna.
Rússneskur flækingshundur kominn í skjól í dýraathvarfi í Washington í Bandaríkjunum. Hann er einn tíu hunda sem bjargað var í borginni Sotsjí í Rússlandi í kjölfar vetrarólympíuleikanna.
Mynd 32 af 32 – Ljósm.: AFP