Útifundur fyrir friði og réttlæti í Palestínu var haldinn á Austurvelli í dag. Fyrir fundinum stóðu Menningar-og friðarsamtök íslenskra kvenna, Samtök Hernaðarandstæðinga og Félagið Ísland-Palestína. Meira
Kertafleyting hófst klukkan 21 við tjörnina í kvöld. Samkvæmt tilkynningu sem félagið Ísland-Palestína sendi frá sér fyrir helgi er fórnarlamba þjóðarmorðsins á Gasa minnst með fleytingunni. Meira
Sendinefnd Palestínu hjá Sameinuðu þjóðunum mun óska eftir því ríkið verði viðurkennt sem fullgilt aðildarríki að stofnuninni. Palestína er nú með stöðu áheyrnarríkis hjá Sameinuðu þjóðunum. Meira
Félagið Ísland-Palestína styrkir Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) fyrir Palestínu um 5 milljónir í ljósi frystingar stjórnvalda á framlögum til stofnunarinnar. Meira
Knattspyrnusambönd tólf þjóða frá Miðausturlöndum hafa sent FIFA og alls 221 knattspyrnusamböndum um allan heim bréf þar sem skorað er á að samböndin taki afstöðu með þjóðunum tólf, sem vilja að Ísrael verði sett í bann frá allri þátttöku í knattspyrnu. Meira
Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, vill meina Ísrael þátttöku í Eurovision en um leið myndi hún styðja þátttöku Palestínu í keppninni. Meira
Fjöldi fólks kom saman í miðbæ Reykjavíkur í dag til að taka þátt í samstöðugöngu fyrir Palestínu. Meira
„Ég afhenti henni möppu sem inniheldur kæruna frá Suður-Afríku og bréf frá félaginu Ísland-Palestína, þar sem við erum að benda á að Ísland ber skyldur samkvæmt sáttmála um Alþjóðaglæpadómstólinn, sem Ísland hefur undirritað.“ Meira
David Cameron, utanríkisráðherra Bretlands, segir að Ísrael verði að vera nákvæmari í hernaðaraðgerðum sínum gegn hryðjuverkasamtökunum Hamas til að lágmarka dauðsföll saklausra borgara. Meira
Félagið Ísland-Palestína boðaði til skyndimótmæla síðdegis í dag, eftir að Ísland sat hjá í atkvæðagreiðslu um vopnahlé í átökunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Meira
Lögreglan í Lundúnum segir nærri hundrað þúsund manns hafa gengið um götur höfuðborgarinnar til samstöðufundar með Palestínu, en nokkrir slíkir fundir voru haldnir í Evrópu í dag. Meira
Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og fyrrverandi formaður félagsins Ísland-Palestína, gagnrýnir yfirlýsingar alþjóðasamfélagsins um rétt Ísraela til að verja sig og spyr hvort það sé ekki jafnframt réttur Palestínu. Meira
Félagið Ísland - Palestína fordæmir undantekningarlaust árásir og morð á almennum borgurum, morðárásir Ísraelshers á innilokaða íbúa Gasa, morð og ofbeldi Ísraelshers gegn Palestínumönnum á Vesturbakkanum og svik alþjóðasamfélagsins, sérstaklega forystu Vesturlanda, við Palestínu í áratugi. Meira
Eru núverandi aðgerðir sem beinast gegn flóttamannabúðum fyrsta skrefið í allsherjarhreinsun á Vesturbakkanum, eða eru Ísraelsmenn einungis að bregðast við hryðjuverkaógn sem hefur búið um sig í búðunum,“ segir Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, og fyrrverandi forseti Hugvísindasviðs skólans, um núverandi stöðu mála í deilu Ísraels og Palestínu, í samtali við mbl.is. Meira
Sveinn Rúnar Hauksson, heimilislæknir og fyrrverandi formaður félagsins Ísland-Palestína, fordæmir stríðsaðgerðir Ísraels gegn Palestínumönnum á Gaza-svæðinu og skorar jafnframt á utanríkisráðherra að gera slíkt hið sama. Meira
Vinsælasti gosdrykkjaframleiðandi heims, Coca-Cola, er sakaður um svokallaðan „regnbogaþvott“ eftir að í ljós kom að neytendur gátu ekki valið það orð sem þeir kusu á sérhannaðar flöskur frá fyrirtækinu. Meira
Ísland tekur þátt í sameiginlegu ákalli alþjóðasamfélagsins um að komið skuli á vopnahléi hið fyrsta milli Ísraels og Palestínu. Óásættanlegt sé að á hverjum degi látist óbreyttir borgarar og börn. Ísland mun ekki ráðast í þvingunar- eða refsiaðgerðir gegn Ísrael eins og kallað hefur verið eftir hér á landi. Meira
Hundruð manna eru samankomin á Austurvelli til þess að mótmæla árásum Ísraelshers gegn Palestínumönnum og þrýsta á íslensk stjórnvöld um að leggja viðskiptabann á Ísrael. Mótmælafundurinn hófst klukkan 13 og hafði verið auglýstur á samfélagsmiðlum. Meira
Þrettán manns, þar af átta börn, létust í árásum Ísraelshers á Gaza-ströndina í dag. Alls hafa 139 látist á svæðinu síðan stríð braust út á mánudag, 130 Palestínumenn og níu Ísraelsmenn. Ríflega þúsund manns hafa særst, meirihluti þeirra íbúar Palestínu. Meira
Víngerð á sér afar fornar rætur í Landinu helga. Raunar svo langt aftur sem sagan kann að teygja sig. Í dag er margt áhugavert að gerast í þessum efnum, allt frá Gólanhæðunum í norðri og í átt að Dauðahafinu. Meira