„Það var fínt að fá þrjú stig út úr þessum leik, þó svo að mörkin hefðu getað verið fleiri. Við líka viljað vera með færri feilsendingar og taka betri ákvarðanir,“ sagði Dagný Brynjarsdóttir landsliðskona í knattspyrnu, sem skoraði eitt mark og lagði upp tvö fyrir Ísland í 3:0-sigri á Ísrael í undankeppni heimsmeistaramótsins, á Laugardalsvelli í kvöld.