Leikskólabörn eru í vaxandi mæli farin að læra að draga til stafs í spjaldtölvum. Á leikskólanum Hvammi í Hafnarfirði eru nú 12 iPadar í notkun og Eva Gylfadóttir, sérkennslustjóri, segir ung börn sem ekki valda blýanti geti skrifað stafina í spjaldtölvunni og þá séu til forrit sem efli málþroska.