Stuðningsmenn hollenska landsliðsins í knattspyrnu hafa sett appelsínugulan svip á bæjarlífið í dag en þeir tóku daginn snemma og byrjuðu að hita upp á Enska barnum upp úr hádegi. Þeir eru bjartsýnir fyrir leikinn í kvöld sem þeir segja að ætti að vinnast nokkuð örugglega.