„Ég gleymdi mér aðeins. Ég hélt að ég væri að henda okkur í framlenginguna en svo var ekki,“ sagði Hólmbert Aron Friðjónsson sem skoraði jöfnunarmark Íslands gegn Danmörku í seinni umspilsleiknum um sæti í lokakeppni EM. Markið dugði ekki til að tryggja Íslandi framlengingu því Danir komust áfram á útivallarmarki.