Lögreglan í New York segir að karlmaður sem réðist á lögregluþjón með exi í gær hafi verið einn á ferð. Lögreglustjórinn Bill Bratton segir að þetta hafi verið hryðjuverk og árásarmaðurinn, sem var skotinn til bana, hafi verið einfari. Lögreglan særði vegfaranda þegar hún skaut árásarmanninn.