Eldhnöttur á himni. Logandi brak féll til jarðar og glæður feyktust hátt í loft upp. Sprenging sem heyrðist um alla strandlengjuna. Þegar eldflaug sprakk nokkrum sekúndum eftir flugtak frá Wallops-flugmiðstöð NASA í Virginíu í gærkvöldi brunnu rúmlega tvö tonn af vistum.