Finnur Stefánsson, þjálfari KR, virtist vera nokkru hissa á stórsigri sinna manna á Keflavík í Dominos-deild karla í körfuknattleik í kvöld, líkt og hann trúði varla sínum eigin augum. Finnur var að vonum gríðarlega sáttur með sigurinn og þrátt fyrir stórsigur þá taldi hann sitt lið eiga nóg inni.