Fyrsta desember verður Apótek hótel opnað í einu sögufrægasta húsi Reykjavíkur á horni Austurstrætis og Pósthússtrætis. Hótelherbergin eru 45 talsins og meðal annars svíta á þremur hæðum í turni hússins. Húsið er friðað að hluta. Þegar Morgunblaðið leit inn voru framkvæmdir í fullum gangi.