„Við erum svekktir og sárir að hafa tapað. Ég verð hins vegar að segja það að mér fannst sigurinn vera verðskuldaður á allan hátt. Við hefðum getað stolið stigi hér í lokin og það hefði verið gaman en að öllum líkindum hefði það verið ósanngjarnt,“ sagði Heimir Hallgrímsson, annar landsliðsþjálfara íslenska landsliðsins í knattspyrnu, eftir 2:1-tap íslenska landsliðsins í knattspyrnu gegn Tékkum ytra í kvöld.