Þrátt fyrir háa dánartíðni meðal nýbura í Nepal þá hefur margt breyst síðan ein þeirra kvenna sem aðstoðar þungaðar konur nú var sjálf að eiga börn fyrir 20-25 árum. „Þetta var eins og í kirkjugarði,“ segir hún og lausnin var að eiga sem flest því helmingur þeirra myndi deyja á fyrsta ári.