Evrópski flugvélaframleiðandinn Airbus afhenti í dag fyrsta eintak af nýjustu afurð sinni, A350 XWB farþegaþotunni. Afhendingin fór fram í frönsku borginni Toulouse og var það forstjóri flugfélagsins Qatar Airways sem tók við þotunni. Fyrsta farþegaflug A350 í nafni Qatar Airways verður 15. janúar.