Á föstudaginn voru furðulegar fígúrur á ferli í Háskóla Íslands, persónur sem líklegra væri að finna í tölvuleikjum eða vísindaskáldskap. Þar voru á ferðinni keppendur í Cosplay-keppni Japanshátíðar HÍ sem undirbúa sig nú af kappi fyrir keppnina sem fer fram í lok mánaðarins.