Danskeppni Reykjavíkurleikanna fer fram í Laugardalshöll um helgina. Í dag var keppt í standard-dönsum og voru sigurvegarar keppninnar krýndir bikarmeistarar. Í flokki fullorðinna sigruðu þau Denise Margrét Yaghi og Þorkell Jónsson. Á meðfylgjandi myndskeiði svífa þau um gólfið og þekkjast á því að hún er í fölbleikum kjól með svörtum blúndum.