Hinn 28. janúar 2014 lést Skarphéðinn Andri Kristjánsson eftir bílslys í Norðurárdal. Skarphéðinn var líffæragjafi og gaf sex líffæri, þar á meðal hjarta til 16 ára drengs. Móðir Skarphéðins telur ólíklegt að hún hefði samþykkt líffæragjöfina, hefði hún ekki vitað um afstöðu hans.