Allt frá því síðasta föstudag hafa 37 írskir og íslenskir skátar tekið þátt í svokallaðri Vetraráskorun. Sú er engin lautarferð en auk þess að hafa gist í tjöldum og fleygt sér niður brekku með ísexi gengu skátarnir 22 kílómetra í einum rikk upp á Hellisheiði á þriðjudag í vonskuveðri.