Á þriðja tug hvalalíkana í raunstærð eru til sýnis á hvalasýningunni Whales of Iceland sem formlega var opnuð fyrir helgi. Að sögn Harðar Bender, stofnanda og stjórnarformanns sýningarinnar, hefur verkefnið tekið um tvö ár og er þetta fjárfesting upp á hundruð milljóna króna.