Þessa dagana standa yfir flutningar í 18 gáma samstæðu sem komið hefur verið fyrir við norðurhlið Landspítalans við Hringbraut. Þar munu sérfræðingar á Rannsóknasviði spítalans hafa aðstöðu framvegis en plássið sem sparast í aðalbyggingum við flutningana mun verða nýtt til að þjónusta sjúklinga.