Fyrir hálfu ári ákvað Reynir Þorvaldsson að segja upp vinnunni og opna plötubúð. Hann hafði safnað vínyl frá unga aldri og allt safnið var sett upp í búðinni á Klapparstíg, líka áritaða Megasarplatan. Síðan hefur búðin dafnað en síðasta Skífubúðin lokaði fyrir stuttu. Í dag er Plötubúðardagurinn.