200 líkpokar lágu á suðurströnd Englands við Brighton í dag. Líkamarnir sem í þeim hvíldu voru þó enn á lífi en þar voru á ferð mótmælendur á vegum Amnesty UK sem vildi vekja athygli á „skammarlegum“ viðbrögðum Bretlands við stöðu flóttafólks við Miðjarðarhaf.