Höfuðpaur fíkniefnavefsíðunnar Silk Road sem hýst var á Íslandi fékk í dag þyngstu mögulegu refsingu fyrir alríkisdómstól Bandaríkjana í New York. Íslensk lögregluyfirvöld gegndu lykilhlutverki í málinu og sá rannsakendum fyrir ýmsum gögnum um notendur síðunnar.