„Mér sýnist að þetta [dómurinn] sé byggt á þessum forsendum sem lagðar voru til grundvallar, að það hafi ekki verið um að ræða umboðssvikabrot þ.e.a.s. að það hafi ekki verið fjártjónshætta við þetta lán,“ segir Andri Árnason, lögmaður, um dóm í Spron-málinu. Því hafi forsendur ákærunnar brostið.