Gunnar Nelson segir að undir rólegu yfirbragði sínu búi „óþolinmóður stráksi“ sem þurfi átök og hreyfingu. Hann er ánægður með sigurinn í Las Vegas og kveðst vera í mun betra formi en undanfarin tvö ár. Persóna Gunnars í UFC tölvuleiknum er hins vegar „hokin í baki og klaufaleg“ að hans mati.