„Hugmyndin er að fólki finnist fötlun ekki óþægileg í umræðu,“ segir bandaríski grínistinn Josh Blue sem er staddur á landinu. Hann segir fötlun vera furðu erfiða í umræðu fólk forðist að tala um hana þar sem það sé hrætt um að móðga einhvern eða hljóma illa upplýst.