Nasa gerði aðeins of mikið úr þeirri uppgötvun sem kynnt var í gær, þótt vissulega sé um merkilega uppgötvun að ræða. Þetta segir Sævar Helgi Bragason, formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness, en hann hefur undanfarin ár fylgst vel með öllu í tengslum við vatn og rauðu reikistjörnuna Mars.