„Liðheildin var góð hjá okkur auk þess sem leikgleðin skein úr hverju andliti. Okkur þótti gaman að vera með og taka þátt í leiknum," sagði stórskyttan Ragnheiður Júlíusdóttir hjá Fram eftir fjögurra marka sigur, 32:28, á liði Selfoss í Olís-deild kvenna í Safamýrinni í kvöld.