Að minnsta kosti 191 hefur látið lífið í aurskriðum í Gvatemala síðustu daga. Í dag drógu björgunaraðilar tuttugu lík úr aurskriðu nálægt höfuðborg landsins. Enn eru 150 manns ófundnir eftir aurskriðurnar en nú er fleiri líka leitað í þorpinu Cambray II.