Pietro Stefán Macheda kom í heiminn tæpum þremur mánuðum fyrir tímann hann var þá einungis 700 grömm og átti eftir að léttast enn frekar. Íris Stefánsdóttir, móðir hans, segir að það hafi skipt sköpum að geta rætt við aðra fyrirburaforeldra þegar ljóst var í hvað stefndi.