Ráðherrar Evrópusambandsins munu ræða hert landamæraeftirlit á neyðarfundi sem boðaður hefur verið í dag í kjölfar þess að í ljós hefur komið að höfuðpaurinn í árásinni á París komst inn á Schengen svæðið án vandkvæða. Innanríkisráðherra Frakklands telur að Evrópa þurfi að vakna og verja sig.