Ægir Þór Steinarsson, leikmaður KR, þurfti stund fyrir sjálfan sig fyrir viðtal sitt við okkur eftir leik. Slík voru vonbrigði hans með kvöldið eftir að hafa tapað toppslagnum gegn Keflvíkingum í TM höllinni í Keflavík. Lokatölur í leik liðanna í sjöundu umferð Domino's deildar í körfuknattleik urðu 89:81 Keflavík í vil.