Vladimir Pútín, forseti Rússlands, segir árás Tyrkja á rússneska herþotu jafngilda rýtingsstungu í bakið af hálfu samverkamanna hryðjuverkamanna. „Ég get ekki lýst þessu á annan hátt,“ sagði forsetinn; vélinni hefði verið grandað af tyrneskri herþotu innan sýrlenskrar landhelgi.