Vladimír Pútín, forseti Rússlands hefur skrifað undir tilskipun um efnahagslegar refsiaðgerðir gegn Tyrkjum, sem viðbrögð við því að Tyrkir skutu niður herflugvél Rússa við landamærin að Sýrlandi. Meðal annars verður áætlunarflug á milli landanna bannað.