„Þegar ég áttaði mig á því að ég yrði síðust upp á vigtina þá vissi ég að þetta yrði rosalega gott, eða rosalega slæmt,“ sagði Hrefna Hrund Erlingsdóttir, keppandi í Biggest Loser Ísland. Í síðasta þætti var fyrsta björgunin notuð, en hvor þjálfari getur bjargað einum keppanda frá því að verða sendur heim.