„Síðasta vigtun var einstök í sögu Biggest Loser held ég. Ég myndi aldrei gera þetta sjálfur, mér finnst þetta óheiðarlegt og mér finnst þetta óíþróttamannslegt,“ sagði Evert þjálfari í The Biggest Loser Ísland um Gurrý mótþjálfara sinn. Hann efast um að björgunin hafi verið sett í þættina til að klekkja á hinu liðinu.