Agla er eini keppandinn sem er öruggur í úrslit í The Biggest Loser Ísland, en hún var næstum send heim í þættinum á undan. „Það finnst mér pínulítið fyndið, ég meina, Agla gæti misst 30 kíló í viðbót á meðan Björgvin átti kannski bara inni 15,“ sagði Gurrý, þjálfari í The Biggest Loser, eftir að Björgvin var sendur heim en ekki Agla.