Leikarinn George Clooney leiddi þúsundir Armena í dag í göngu til minningar um þjóðarmorðið á Armenum á tíma fyrri heimsstyrjaldarinnar. Þjóðarmorðið „er hluti af armenskri sögu, en líka sögu heimsins. Það er ekki einungis sársauki einnar þjóðar,“ sagði hann við komuna til Yerevan höfuðborgar Armeníu.